Félagiđ
Varðberg er félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu. Markmið félagsins er að efla skilning meðal ungs fólks á Íslandi á gildi lýðræðislegra stjórnarhátta, skapa aukinn skilning á mikilvægi samstarfs lýðræðisþjóðanna til verndar friðinum, vinna gegn öfgastefnum og öfgaöflum jafnframt því að þjálfa ungt fólk í stjórnmálastarfi. Félagið hefur þar að auki samstarf við hliðstæð samtök innan annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins. Að félaginu koma félagar úr ungliðahreyfingum Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingar og Framsóknarflokksins.

